1. |
Lokaorð
04:56
|
|||
Dvelur þungt undir jökulrótum
kvelur mig milli svefns og vöku
á kvöldum köldum
vekur mig með sögum ljótum
ei líður nóttin, lengst af öllum
Hver stendur yfir mér, hvað dvelur inni hér?
Stígur nær að köldum gjótum
hér tók hann líf þitt dauðinn forðum
í köldum orðum
þú heyrir hljóma í fjarska í fótum
fylgdu eftir rauðum slóðum
Hver stendur yfir mér, hvað dvelur hér inni
og kveður mín lokaorð?
Ég heyri enn þín orð
|
||||
2. |
Vágestur
03:53
|
|||
Auðnin dregur mig niður forna slóð, dvín hinsta sól
þar arka dauðir menn og ef ég lifi í nótt hún ann mér enn
Þig hef ég áður hitt, myrkrið sem kvelur mig
þú herjar enn svo grimm, þú herjar enn svo grimm
Ég horfi í augu þín þar er allt í ró, illvilji þó
ég ráfa í auðn og fár, þau drepa hljótt, óblæðandi sár
Sefur þú ein um sinn, vakir þú ein um sinn?
ég læri seint, ég læri seint
Ef þú ferð þína leið, þá fer ég mína leið
|
||||
3. |
Auðn
03:42
|
|||
Eigðu við mig orð, varir þínar brenna
leiðir að lokum hverfa lengst fjarri mér ljósið deyr
Þú ein það veist hvað í mér dvelur
þú ein allt sérð eins og ég, fegurð
sú nótt sem leið lifir í mér aldrei meir
aldrei meir
Kófsvarta hamingja, senn brýr að baki brenna
eldar í huga brenna, lygin er mín aldrei meir
Þú ein það veist hvað í mér dvelur
þú ein allt sérð eins og ég, fegurð
sú nótt sem leið lifir í mér aldrei meir
aldrei meir
|
||||
4. |
Fortíð
04:45
|
|||
Farðu huldu höfði þegar sárin kvelja þig á ný
ég horfi í þína átt, ég horfi í þína átt
ég svikinn var og er, gekk kaldur út í mykrið
hún var dauðalogn í hjarta mér og hún er þar enn
blæðir nóg?
Ég svikinn var og er, gekk kaldur út í mykrið
hún var dauðalogn í hjarta mér og hún er þar enn
Farðu huldu höfði þegar sárin kvelja þig á ný
því ég horfi í þína átt, því ég horfi í þína átt
blæðir nóg?
þér blæðir nóg
|
||||
5. |
Svarta nótt I
02:06
|
|||
6. |
Svarta nótt II
04:08
|
|||
Svört kvöldin svíkja augun mín
ótal brestir verða til í mér
en nóttin svæfir mig fyrir rest
leggur hönd um háls og herðir að mér
Ég horfði út í svarta nótt
köld golan ómar vel við orðin þín
ég vona að ég vakni aldrei
þig svíkur tíminn eins og mig fyrir rest
Þú slekkur eldinn innst í mér með fáum orðum
þú svertir kvöldsins köldu sól
þú leiðir mig í svarta nótt
Þegar heldur auðnin til í mér, ég finn ekki orðin
er kvelja raddir mína ró
þú breiðir yfir mig svarta nótt
|
||||
7. |
Iðrun
04:08
|
|||
Augun störðu í löngu liðna tíð
þú faldir vopnið sem skar í hörundið
en hendur féllu, hugurinn bar sár
og draumar lifðu aldrei nætur af
Þú ert hér enn í stormi löngu lygnum
þú ert hér enn í straumum löngu lygnum
Raddir sögðu löngum ósönn orð
og sárin blæða ef barið á þeim er
þú grefur aldrei og gleymist aldrei það
sem áður gerðist og mér er liðin tíð
Þú ert hér enn í straumum löngu lygnum
þú ert hér enn í stormi löngu lygnum
|
||||
8. |
Janúar
04:49
|
|||
Ég skildi aldrei neitt og öðru fæ ég aldrei gleymt
fellur sólin, brestur himinn í grát
Ég þagað get ekki meir, svart hjartað visnar upp og deyr
líði árin man ég orðin þín, stíg í eldinn
sem brennir ár, eitt og eitt
Hverfur þína leið..nei, enginn veit þinn veg
hann horfinn sjónum er, þó kveð ég aldrei
Lifði minning yfir daga og ár
lifði vonin sem hverfur brátt
lifir nóttin yfir aldir og ár
kvelur óttinn sem hverfur brátt
daufur máni dylur andlit, óblíði dauði
aldrei aftur, aldrei aftur svíður mig sorg
Ég gleymi aldrei þér, fágætur vinur varst þú mér
gegnum árin biðu örlögin, svæfa hjartað seint
veðraóp, kaldur sjór
Hverfur þína leið..nei, enginn veit þinn veg
hann horfinn sjónum er, þó kveð ég aldrei
Ég skildi aldrei neitt, þó kveð ég aldrei
ég þagað get ekki meir, þó kveð ég aldrei
|
||||
9. |
Fornir sandar
03:20
|
|||
Ég gekk í dag yfir forna sanda, risti í grjótin orð
sem geyma auðnin, hér á enginn afturkvæmt
örlögin hér svo ófyrirséð
Dulur þú bauðst mér brotið loforð, að fyndi ég bráð í nauð
stálið mig fann, höggið mig vankaði
hugur minn hljóðlega í dauðann hvarf
Fortíðin gleymir mér, ég geymi mynd af þér
ég skrifa orð mín við forna sand
Einveran heldur mér í heitum eldum hér
ég syng í hljóði við forna sand
Ég á engan aldur, ég er blóð og sandur
|
||||
10. |
Skaði
03:29
|
|||
Ég heyri hörð orð í háum róm
ég lifi hvern dag svarta nótt
ég er horfin, ég veit ei hvert
hvergi ég finn mér frið
en þín von er mín von
og þú veist að svo er
Ég er ófyrirséð óvægið rok
þig dreymir hvern dag mín ævilok
ég er Skaði, ég er skjóllaus heift
það er ekkert sem fær því breytt
því ég er það sem ég er
og þú veist hver ég er
Ekkert traust, engin lausn
í gegnum lífið endalaust
|
||||
11. |
Ófærir vegir
06:11
|
|||
Ég mun aldrei breyta mínu lífi fyrir þig
þótt deilum við okkar myrku leið
ég mun ekki þegja lengur þögnin drepur mig
dauðvona hverf ég á annan heim
Ófærir vegir opnast mér
ófærðin leiðir mig langt af veg
Ég mun aldrei vekja mína ótta, liðna tíð
þótt inni í mér verði alltaf reimt
ég mun aldrei aftur brenna að baki allar brýr
kulinn þó kem ég að lokum heim
Ófærir vegir opnast mér
ófærðin leiðir mig langt af veg
Ófærir vegir opnast mér
ófærðin, ófærðin
|
Eldrún Reykjavík, Iceland
Delivered in one of the oldest living languages in the modern world, and released just in time to see the darkest time of winter, Eldrún's debut album came into creation at the end of 2018.
Streaming and Download help
If you like Eldrún, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp